Ferill 239. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 239 . mál.


710. Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. um Viðlagatryggingu Íslands, nr. 55/1992.

Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.



     1 .     Á undan 1. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
                  Í stað „11. gr.“ í 2. gr. laganna kemur: 10. gr.
     2 .     Á eftir 2. gr. komi tvær nýjar greinar, svohljóðandi:
                   a .     (4. gr.)
                            Orðin „og 6. gr.“ í 9. gr. laganna falla brott.
                   b .     (5. gr.)
                            3. tölul. 10. gr. laganna fellur brott.
     3 .     Við 3. gr. Við bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Orðin „og 6. gr.“ í 4. mgr. falla brott.
     4 .     Við 4. gr. Í stað orðanna „til björgunarsveita vegna starfsemi sem viðurkennd er af Almannavörnum ríkisins“ komi: til fræðslu- og þjálfunarmála þeirra landssamtaka sem hafa samstarfssamning við Almannavarnir ríkisins um skipun hjálparliðs.
     5 .     Við 5. gr. Greinin orðist svo:
                  Við lögin bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
                  Á árinu 1995 skal stjórn Viðlagatryggingar Íslands greiða Ísafjarðarkaupstað 90 millj ónir króna í bætur vegna tjóns sem varð á skíðalyftum á Ísafirði í snjóflóðum veturinn 1994.